Þessi flotti ginkokkteill er splunkunýr, gerður sérstaklega fyrir Vínótekið af Valtý Bergmann á Fiskmarkaðnum og margföldum meistara í kokkteilkeppnum.
3 cl Broker’s Gin
1,5 cl De Kuypers Triple Sec
1,5 cl De Kuypers Melon
1 cl De Kuypers Wild Strawberry
6 cl trönuberjasafi
Setjið allt í kokkteilhristara ásamt klaka. Hristið vel. Hellið í hátt glas ásamt klaka. Fyllið upp með sódavatni.