Roda 1 Reserva 2006

Vínhúsið Roda er ekki bara eitt besta vínhús Rioja heldur hefur það jafnframt sterka Íslandstengingu í gegnum eigandann Mario Rotlant, sem hefur lengi verið með helstu saltfisksinnflytjendum Spánar og haslaði sér jafnframt fyrir ekki svo löngu völl í íslensku viðskiptalífi með kaupum á Vífilfelli.

Roda er ekki gamalt vínhús. Það var sett á laggirnar árið 1987 og var markmiðið frá upphafi að búa til Rioja-vín í nýjum stíl í hæsta gæðaflokki. Áhrifavaldurinn er ekki síst bestu vín Bordeaux og það endurspeglast vel í þessu víni, það væri hægt að lýsa því sem mössuðu Bordeaux í Rioja-stíl eða öfugt. Vínið þykkt, mikil eik, kaffi og vanillubaunir, kjötmikið, svartur þurr og þykkur ávöxtur. Afskaplega aðgengilegt og munaðarfullt.

7.998 krónur.

 

Deila.