Compania Vinicola del Norte del Espana er eitt af elstu og stærstu vínhúsum Rioja. Vínin frá CVNE eða Cune eins og fyrirtækið er yfirleitt kallað í dag eru tiltölulega nýkomin á íslenska markaðinn og var nýlega haldin stór og mikil smökkun á þeim sem lesa má um hér.
Árgangurinn 2005 í Rioja var kannski ekki alveg eins góður og hinn stórkostlegi 2004 en engu að síður með bestu árgöngum síðasta áratugar. Það leynir sér ekki í þessu Reserva-víni.
Cune Reserva 2005 er þétt og kjötmikið, reykur og krydd ásamt þurrkuðum kirsuberjum, með þó nokkurri vanillu í nefi, mjúkt, milliþungt með mildum tannínum en staðföstum tannínum í lokin.
Nautakjötsvín, ekki spurning.
2.890 krónur