Strandlengja Ítalíu er löng og rétt eins og annars staðar við Miðjarðarhafið er þar borðað mikið af sjávarfangi. Þessi pasta-uppskrift frá Suður-Ítalíu byggir að hluta til á klassískum hráefnum á borð við tómata og steinselju en fennelfræin og klettasalatið ljá þessu svolítði öðruvísi blæ.
Það er í sjálfu sér hægt að nota íslenskar rækjur í þennan pastarétt en risarækjurnar sem hægt er að kaupa frosnar í flestum stórmörkuðum eru líkari Miðjarðarhafsrækjunum sem notaðar eru í upprunalegu útgáfunni.
- 500 g pasta, t.d. spaghetti eða penne.
- 1 pakki ósoðnar risarækjur
- 1 dl hvítvín
- 1 dós heilir tómatar
- 1 pakki klettasalat
- 1 msk fennel-fræ
- 1 msk rauðar chili-flögur
- 1 lúka flatlaufa steinselja, fínt söxuð
- ólívuolía
- salt og pipar.
Afþíðið rækjurnar. Hitið olíu á pönnu og snöggsteikið rækjurnar. Þær skipta hratt um lit úr gráu í bleikt. Bætið hvítvíni og fennelfræjum út á og látið malla í um mínútu. Bætið við tómötunum, chiliflögum og saltið örlítið. Leyfið að malla í 3-4 mínútur.
Sjóðið pasta, hellið vatninu frá og setjið pastað á pönnuna. Blandið öllu vel saman og bætið síðan klettasalatinu út á. Hrærið saman, sáldrið steinseljunni yfir og berið fram með nýrifnum parmesanosti.
Með þessu gott suður-ítalskt hvítvín á borð við Lamadoro Bianco.