Suður-Frakkland hefur svo sannarlega verið að sækja í sig veðrið hér á landi síðustu mánuðina og í búðirnar hafa streymt mjög athyglisverð vín. Vínhúsið Mas de Soleilla er dæmi um endurreisnina í víngerð Languedoc. Það var stofnað fyrir áratug af svissneskum hjónum sem höfðu mikla trú á svæðinu La Clape rétt við borgina Narbonne.
Rauðvínið Les Chailles er blanda úr Grenache og Syrah. Kröftugt, óeikað, kryddað með ávextinum í forgrunn. Krækiber og sólber, þroskuð í bland við kryddjurtir, vottur af rósmarín. Vel uppbyggt og fremur létt í stílnum.
3.799 krónur.