Sella & Mosca Cannonau di Sardegna 2009

Vín frá Sardiníu hafa verið sjaldséð hér á landi þó þessi fallega ítalska eyja hafi upp á margt að bjóða. Fyrir um áratug voru þó nokkur vín frá vínhúsinu Sella & Mosca, einum helsta framleiðanda Sardiníu, fáanleg og nú hafa þau skotið upp kollinum á nýjan leik.

Þetta rauðvín er gert úr þrúgunni Cannonau sem er í raun ekkert annað en Grenache, sem er algeng víða við vestanvert Miðjarðarhafið, bæði á Spáni og í Frakklandi. Þungt, dökkur, nær sultaður ávöxtur, plómur og dökk ber, fjós, smá fjólur. Mjúkt, heitt í munni, mild tannín og sýra. Hvers vegna ekki að reyna með pasta þeirra Sardiníubúa, fregola, en nokkrar uppskriftir má finna hér. .

2.490 krónur.

Deila.