Rémy í nýjum umbúðum

Koníak er svolítið íhaldssamur drykkur enda byggir það á eimuðum vínum sem legið hafa á tunnu áratugum saman áður en þau eru sett saman í hina endanlegu blöndu. Það eru því nokkur tíðindi þegar að einn þekktasti koníaksframleiðandi heims, Rémy Martin, gjörbyltir framsetningu á þekktustu vöru sinni.

Rémy Martin VSOP hefur áratugum saman verið selt í grænni flösku skreyttri með einhyrningnum sem hefur verið tákn fyrirtækisins allt frá því að Paul Emile Rémy Martin byrjaði að nota það árið 1870. Frá og með þessum mánuði er Rémy VSOP hins vegar selt í glærri flösku, einhyrningurinn er þó enn á sínum stað og koníakið er nú að auki skilgreint sem Mature Cask Finish en það vísar til þess að lokablandan er nú látin liggja um ár í 20 ára gömlum eikartunnum áður en að hún fer á flöskur en þaður var lokablandan látin liggja í stórum eikarámum.

Deila.