Domaine de Tariquet Classic 2011

Domaine de Tariquet Classic er frá svæði sem að við sjáum sjáldan – Cotes de Gascogne í suðvesturhluta Frakklands (á svipuðum slóðum og Armagnac er framleitt), þrúgurnar sömuleiðis ekki þær algengustu í vínúrvali okkar Íslendinga: Ugni Blanc, Colombard, Sauvignon og Colombard. Ugni Blanc og Colombard raunar sömu þrúgurnar og notaðar eru í grunnvín Armagnac.

Þetta er hins vegar hvítvín sem að menn ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Fersk, skörp og mjög grösug angan, ferskar kryddjurtir, timjan, salvía en einnig skarpur og flottur sítrus. Ferskt og stílhreint, klassavín fyrir verðið.

1.890 krónur. Frábær kaup.

Deila.