Cabernet Sauvignon frá Chile einkennist oft af nokkuð áberandi myntu í nefi og jafnvel ekvalyptus. Þetta vín frá Cono sur er hins vegar alls ekki dæmigert Cabernet frá Chile, það sækir eiginlega meira í Bordeaux og Kaliforníu í stílnum.
Dökkt á lit, kröftug angan, kaffi og vanillu í bland við dökkan, sætan ávöxt, plómur og sólber og smá leður, reyk. Vel balanserað og elegant í munni, það hefur meiri þyngd, dýpt og mýkt en maður á von á, all margslungið vín sem kemur virkilega vel út miðað við verð. Með rauðu kjöti.
1.850 krónur. Mjög góð kaup. Fær þá fjórðu út á einstaklega gott samspil verðs og gæða.