Cune er næstelsta vínfyrirtæki Rioja-héraðsins á Spáni, stofnað á síðari hluta nítjándu aldar. Það framleiðir traust og góð vín í hinum klassíska stíl héraðsins.
Þetta er flott dæmi um það, dökkt, enn ungt og sprækt, nokkuð eikað með djúpum og sætum ávexti, púðursykur, kaffi og vanilla í bland við dökkan og þroskaðan berjaávöxt. Mjög mjúkt í munni en þó með föstum og vel uppbyggðum tannínum. Ekta vín fyrir safaríka nautasteik.
2.999 krónur.