Frakkland er stórt og víðfeðmt land og aðstæður til víngerðar eru afskaplega fjölbreyttar eins og sést á þeirri breiðu flóru vína sem Frakkar geta boðið upp á. Einhverjar bestu aðstæður sem hægt er að hugsa sér eru við Miðjarðarhafið enda líta margir svo á að þau ræktunarsvæði séu einskonar leynivopn Frakka í samkeppni við víngerðarmenn í Nýja heiminum.
Barton & Guestier er gamalgróið vínsölufyrirtæki sem var stofnað árið 1725 og er með þeim stærstu og þekktustu í Frakklandi. Það er til húsa í Bordeaux en selur vín frá mörgum helstu víngerðarsvæðum landsins.
Barton & Guestier Chardonnay 2007 er hvítvín frá Suður-Frakklandi, skilgreint sem vin de pay d’Oc. Þetta er þægilegur og mildur Chardonnay með léttum hitabeltisávexti og sítrus í nefi. Þarna má finna gular melónur og ferskjur og örlitla eik sem breikkar ilmkörfuna.
1.999 krónur. Góð kaup.