Vínin frá Chianti í Toskana á Ítalíu eru alltaf jafnvinsæl enda yndisleg matarvín. Þetta er ungur einfaldur Chianti frá vínhúsinu Piccini, blanda af þrúgunum Sangiovese (95%) og Ciliegiolo. Við víngerðina er þurrkuðum Sangiovese-berjum blandað út í vínlöginn sem gefur víninu aukna vídd.
Piccini Chianti 2008 er ungt með björtum og hressilegum ávexti, dökkum berjum og kirsuberjum, nokkuð skarpt með lyngi og kryddi. Sprækt í munni, ekkert svakalega stórt en með hreinum og fínum berjaávexti sem endurspeglar vel einkenni Sangiovese-þrúgunnar.
Með pasta eða pizzu.
1.779 krónur. Góð kaup.