Tvær mínútur, kallar Hákon Már Örvarsson sem fylgist grannt með því sem fram fer í eldhúsinu hjá Fastus í Síðumúla þar sem Þráinn Freyr Vigfússon hefur undanfarna mánuði æft stíft fyrir undankeppni matreiðslukeppninnar Bocuse d’Or sem fram fer í Sviss í 7. og 8. júní næstkomandi.
Þráinn og teymið hans í eldhúsinu hafa verið að frá því sjö um morguninn að undirbúa réttina tvo frá grunni sem eldaðir verða í Sviss. Eftir tvær mínútur verða fimm klukkustundir liðnar frá því að þeir hófust handa og þá á fyrsti rétturinn, sem byggist á lúðu, að vera tilbúinn. Það er hins vegar ekki mikið stress að sjá. Handtökin örugg og fumlaus og allt skilar sér á bakka og diska á réttum tíma. Þrjátíu og fimm mínútum síðar á svo aðalrétturinn, sem byggist á kálfakjöti, að vera tilbúinn.
Liðið er orðið vel samhæft enda búið að æfa allt að sex daga vikunnar í sex klukkustundir á dag upp á síðkastið enda skiptir hver sekúnda máli þégar á hólminn er komið.
Íslenska teymið keppir undir heitinu Lava 2010 og leggur mikla áherslu á hraun og reyk í framsetningu sinni. Það var þó allt ákveðið og undirbúið áður en Eyjafjallajökull fór að gjósa en mun vafalítið verða til að vekja athygli á framlagi Íslands.
Bocuse d’Or er virtasta keppni sinnar tegundar í heiminum. Íslendingar tóku fyrst þátt í Bocuse d’Or árið 1999 og var þá keppandinn Sturla Birgisson sem þá starfaði í Perlunni. Hann náði fimmta sætinu. Nú er haldinn sérstök forkeppni fyrir heimsálfurnar og er keppnin í Sviss forkeppnin fyrir Evrópu. Þeir matreiðslumenn sem ná bestum árangri þar komast síðan áfram til Sviss.
Þráinn Freyr er tæplega þrítugur Skagfirðingur. Hann lærði á Cafe Óperu og Hótel Sögu og hefur undanfarið starfað sem aðstoðarmatreiðsumeistari í Grillinu. Hann hefur m.a. unnið titilinn matreiðslumaður ársins árið 2007 og einnig má nefna að hann náði öðru sæti í keppninni Matreiðslumaður Norðurlanda árið 2009.