Baron de Ley Finca Monasterio 2007

Vínhúsið Baron de Ley, fyrir utan þorpið Mendavia syðst í Rioja við mörkin að Navarra, er dæmigert fyrir nýbylgjuna í Rioja. Þetta er vínhús í Chateau-stíl byggt upp í kringum gamalt Benediktína-munkaklaustur. Vínið Finca Monasterio kemur einmitt af ekrum klaustursins.

Þetta er tignarlegt og rismikið vín með dökkum, þroskuðum sólberja- og plómuilmi og áberandi eik. Ávöxturinn djúpur með reyk og kaffi. Langt og þétt í munni með aflmiklum tannínum og löngu bragði. Yndislegur Rioja.

 3.799 krónur.

 

Deila.