Cloudy Bay er vínið sem kom Sauvignon Blanc frá Nýja-Sjálandi og svæðinu Marlborough á kortið þegar fyrsta vínið kom á markað fyrir 25 árum. Það er enn með bestu vínhúsum Nýja-Sjálands og árgangurinn 2009 er hreinasta afbragð.
Vínið er ljóst og tært á lit, fágaður ilmur með björtum suðrænum, greipávexti og mangó. Yndislega balanserað með sætum ávexti og ferskri, míneralískri sýru. Líkt og betri Sauvignon Blanc vín frá Nýja-Sjálandi sameinar það kraft Nýja heimsins og elegans þess gamla.
4.299 krónur. Með skrúfutappa líkt og nær öll nýsjálensk vín í dag.