Þessar fagurbleiku og ómótstæðilegu cupcakes voru bakaðar í tilefni Valentínusardagsins en eru auðvitað alltaf jafngóðar.
Kökudeigið:
225 g ósaltað smjör, mjúkt
225 g sykur
225 g hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar
4 egg
Kremið:
375 g flórsykur
225 g ósaltað smjör, mjúkt
1 tsk vanilludropar
rauður matarlitur
klípa af salti
Silfurkúlur til skreytingar
Aðferð:
Hitið ofninn í 175 gráður
Setjið allt sem á að fara í kökudegið í skál og þeytið saman með handþeytara í um þrjár mínútur eða þar til deigið er orðið slétt og fínt.
Raðið múffuformum á bökunarplötu og skiptið deiginu á milli. Þetta er nóg í um 20 stórar bollakökur eða um 30 litlar.
Bakið í 20 mínútur. Takið út og leyfið að kólna.
Þeytið á meðan saman smjör, flórsykur, vanilludropa og salt með handþeytara þar til að kremið er orðið slétt og fínt. Bætið matarlitnum varlega saman við, nokkra dropa í einu þar til að þið hafið náð þeim lit sem þið viljið.
Smyrjið kreminu á kökurnar þegar þær hafa kólnað. Gott er að nota kremsprautu til verksins. Sáldrið silfurkúlum yfir til skrauts.