Reyka Vodka sem framleitt er í Borgarnesi vann til gullverðlauna (Best in Class) hjá International Wine and Spirits Competition. Þetta er mikil viðurkenning enda IWSC með virtustu keppnum á þessu sviði í heiminum. Dómararnir virðast hafa heillst mjög af Reyka og í umsögn þeirra segir að nefið sé nánast eins hreint og hlutlaust og hægt sé að hugsa sér, í munni gefi vodkað af sér þokka og ferskleika. Dómnefndin er skipuð stórum hópi alþjóðlegra sérfræðinga.
Reyka gerir það gott
Deila.