Hoegarden

Hoegarden er þekktasti hveitibjór Belga. Á þýsku eru slíkir bjórar kallaðir Weissbier en á flæmsku er heitið Witbier. Hann hefur mjög sérstakt bragð enda er bætt út í hann appelsínuberki og kóríander. Hooegarden var upphaflega bruggaður af munkum í samnefndum bæ og hafa vinsældir hans stöðugt farið vaxandi í Evrópu á síðastliðnum áratugum. Hann hefur mikinn karakter, er léttur og ferskur og þykir henta vel í hitum.

Deila.