Saint Clair Pioneer Block Sawcut 2008

Þessi nýsjálenski Pinot Noir frá Saint Clair er „einnar ekru vín“ en í því felst að allar þrúgurnar koma af einni og sömu ekrunni í Ure-dalnum. Vínið var að lokinni gerjun látið liggja í 10 mánuði á tunnu, þar af helmingurinn í nýjum, frönskum eikartunnum.

Í nefi þroskuð rauð skógarber og kirsuber, sultaður rabarabari og kanilstöng. Nokkuð eikað með vanillutónum. Þykkt og kryddað í munni, þétt tannín. Með lambi og kryddjurtum eða önd í berjasósu.

3.499 krónur

 

Deila.