Vínin frá Toskana eru þekktust hér á landi þegar kemur að ítölskum gæðavínum. Héraðið Piedmont í norðausturhluta landsins er hins vegar að margra mati magnaðast þegar kemur að ítölskum rauðvínum.
Barbera er önnur meginrauðvínsþrúga Piedmont. Hin er Nebbiolo og einnig er þarna ræktuð þrúgan Dolcetto með oft frábærum árangri. Þetta Barbera-vín frá Vajra er frá svæðinu við þorpið Alba, þaðan sem Barolo kemur. Það er dökkt og djúpt á lit, kröftugur dökkur ávöxtur í nefi, krækiber og kirsuber í bland, umlukin eik, kröftugt, sýrumikið í munni með sýru sem gefur víninu þéttingsfast grip og gerir það ótrúlega matvænt, það er míneralískt og kryddað, þarna er smá lakkrís, ávaxtamassinn mjúkur og þéttur. Með þungum ítölskum réttum á borð við risotto, pasta með bragðmiklum kjötsósum og villibráð.
3.495 krónur. Frábær kaup.