Blanc de Blancs frá Raimat er hvítvín frá Katalóníu á Spáni, nánar tiltekið svæðinu Costers de Segre. Þetta er blanda úr Chardonnay og Albarino en sú síðarnefnda er ekki algeng á þessum slóðum og er þekktust í vínum Galisíu og norðurhluta Portúgals.
Vanilla, sítrónubúðingur, sítrónbörkur, blómaangan, feitt með mildri sýru í munni. Langt og þægilegt.
1.999 krónur. Mjög góð kaup.