Þessi ferski perulíkjör var hristur saman af Jóhanni Gunnari á Tapashúsinu.
- 3 cl Mickey Finn Pear
- 3 cl limesafi
- 3 cl sykursíróp
- Sprite
- Pera til skreytingar
Setjið perulikjör, limesafa og sykursíróp í kokkteilhristara ásamt klaka. Hristið vel saman. Fyllið highballglas með klaka. Síið í glasið. Fyllið upp með Sprite. Skreytið með perusneið og jafnvel sítrónu.