Þessi kaka er algjört sælgæti og hana þarf ekki einu sinni að baka.
- 100 g suðusúkkulaði
 - 100 g karamellupipp
 - 100 g smjör
 - 4 msk sýróp
 
Brætt saman í potti við lágan hita.
- 4 bollar Rice Krispies
 - 2 bananar, niðursneiddir
 - 2,5 dl rjómi, þeyttur
 
Hellið Rice Krispies út í blönduna og hrærið vel saman. Þegar það er allt orðið súkkulaðihúðað er blöndunni hellt kringlótt kökuform, þrýst niður og kakan kæld.
Bananar eru skornir í sneiðar og raðað á kökuna. Þá er þeyttum rjómanum smurt ofan á bananana.
Karamellusósa
- 30 Nóa „töggur“ (karamellur)
 - 1 dl rjómi
 
Setjið karamellurnar og rjóma í pott og bræðið varlega saman. Þá er karamellan kæld og loks hellt yfir kökuna í mjórri bunu.
Fleiri uppskriftir að kökum og eftirréttum fáið þið með því að smella hér.