Þetta eru heimatilbúnir amerískir ostborgarar samkvæmt klassískri uppskrift. Ekkert vesen, bara góður, safaríkur borgari.
- 800 g hakkað nautakjöt
- 2 msk steiktur laukur, myljið
- 1 tsk salt
- 1/2 tsk nýmulinn pipar
- ostur
Blandið saman (nema ostinum) og mótið í 6 borgara. Geymið í ísskáp fram að eldun.
Grillið eða steikið á pönnu – 4-5 mínútur á hvorri hlið. Setjið 2 vænar sneiðar af osti á hvern borgara þegar að þið snúið þeim við.
Meðlætið
- Hamborgarabrauð
- aioli (eða majonnes)
- Dijon-sinnep
- tómatar
- jöklasalat
- rauðlaukur
- sýrðar gúrkur
Skerið brauðin í tvennt og grillið í 1 mínútu. Smyrjið aioli og sinnepi á brauðið, setjið sneið af tómati, rauðlauk jöklasalati og sýrðum gúrkum eftir smekk. Lokið borgaranum.
Gott Nýjaheimsvín með, t.d. Trivento Malbec Golden Reserve.
Skráðu þig á póstlistann með því að smella hér og fáðu reglulegt fréttabréf.