Sartori Marani er hvítvín frá Veneto í norðurhluta Ítalíu. Þrúgan er Garganega og vínið er flokkað sem Veronese IGT.
Það er gullið á lit, djúp angan, ljósir ávextir, apríkósur, sítrus en einnig hunang og kryddjurtir, fennel og jafnvel anís. Feitt í munni en einnig með með ágæta sýru og ferskleika. Gott matarvín. Reynið t.d. með ítölsku humarpasta.
2.298 krónur.