Á síðari hluta síðustu aldar byrjuðu mörg af bestu vínhúsum Toskana á Ítalíu að losa sig undan hinum hamlandi reglum vínlöggjafarinnar og gera stór og mikil vín undir áhrifum Bordeaux-héraðsins í Frakklandi og oftar en ekki að einhverju eða jafnvel öllu leyti með Bordeauxþrúgum. Þetta „mátti ekki“ og voru vínin því lengi flokkuð í lægsta þrepi vínlöggjafarinnar „vino di tavola“. Nú eru breyttir tímar og kominn nýr flokkur, IGT, sem fellur að þessum vínum, enda oft um bestu vín Ítalíu að ræða.
Ricasoli-fjölskyldan í Brolio-kastala á sitt „súper-toskana“ vín og heitir það Casalferro. Vínið var lengi blanda en þetta vín – 2006 árgangurinn – er sá síðasti þar sem ítölsku Sangiovese-þrúgunni er blandað saman við Merlot. Næsti árgangur er hreint Merlot.
Það verður forvitnilegt að sjá en ekki laust við að maður fyllist nostalgíu, vegna þess að Casalferro 2006 er nær fullkomið í sínum flokki, það hefur tignarlegan Sangiovese-karakter, með Bordeaux-strúktúr.
Dökkt þétt, vindlakassi, mokkakaffi og þroskuð dökk ber, kirsuber, trönuber. Kraftmikið, kryddað og langt með þéttum, mjúkum tannínum. Frábært matarvín.
5.499 krónur. Mjög góð kaup.