Frascati-vínin eru hin einu sönnu vín Rómarbúa enda er víngerðarsvæðið rétt utan við borgarmörk ítölsku höfuðborgarinnar. Eitt af elstu skilgreindu víngerðarsvæðum sem vitað er um. Fontana Candida er með helstu framleiðendum svæðisins, þetta vín var til hér á markaði fyrir um tveimur áratugum eða svo og er nú fáanlegt að nýju.
Vínið er mjög ljöst og fölt á lit, tært með ferskri angan af peru, sítrus og blómum, létt, skarpt og ferskt, svolítið míneralískt. Frascati-vínin eru ekki stór en þau eru létt, þægileg og afskaplega ítölsk. Fínn fordrykkur eða með t.d. grilluðum fiski og sítrónu.
1.939 krónur.