Kjötbollur og pasta í góðri sósu eru vinsæl samsetning. Hér eru bollurnar gerðar á svipaðan hátt og ítalskar pylsur og bragðmikil sósan með gráðaosti, hvítvíni og óreganó.
Kjötbollurnar
- 600 hakkað svínakjöt (t.d. grísahnakki)
- 4 pressaðir hvítlauksgeirar
- 1 msk fennel
- 1/2 tsk chiliflögur
- skvetta af Sambuca (má sleppa)
- klípa Cayennepipar
- salt og pipar
Blandið öllu saman og mótið mjög litlar kjötbollur. Hver þeirra á að vera rétt um munnbiti.
Sósan
- 2 dl hvítvín
- 85 g rifinn gráðaostur
- 2,5 dl rjómi
- væn lúka af söxuðu fersku óreganó
Hitið olíu á pönnu og steikið kjötbollurnar í 5-8 mínútur. Hellið þá hvítvíninu út á pönnuna og látið malla með í um 2-3 mínútur. Þá er rjómanum, gráðaostinum og óreganó bætt saman við. Látið malla á miðlungshita í um 10-12 mínútur eða þar til að sósan hefur þykknað vel.
Á meðan kjötbollurnar og sósan eru eldað er pasta soðið. Penne hentar t.d. vel. Þegar sósan er tilbúin er pastanum blandað saman við sósuna og kjötbollurnar. Berið fram með nýrifnum Parmesan-osti eða Pecorino.
Gott ítalskt rauðvín með, t.d. Isole e Olena Chianti Classico.
Fleiri uppskriftir að kjötbollum má svo finna hér.
