Vín frá Sikiley voru mun fyrirferðarmeiri í vínbúðunum fyrir nokkrum árum en nú er raunin. Sem er synd, það eru nefnilega framleidd afskaplega athyglisverð vín á þessari suður-ítölsku eyju sem er ekki síst að þakka spennandi staðbundnum þrúgum. Hvíta þrúgan Cataratto er ein þeirra, sem hér er blönduð Chardonnay.
Ljóst á lit, ferskt, bjart, fullt af suðrænum ávöxtum í nefi, sætur ananas, sítrus og kantalópumelónur en einnig suður-evrópskar kryddjurtir. Mild og fersk sýra, feitur ávöxtur, létt og afskaplega sumarlegt.
2.099 krónur