Lamberti Santepietre Merlot 2011

Þetta ítalska rauðvín kemur frá Veneto-héraðinu í norðurhluta landsins en þar unir hin franska Merlot-þrúga sér ágætlega.

Ferskur kirsuberjaávöxtur í nefi, bjartur, þægilegur svolítið kryddaður, í munni þurrt, nokkuð þykkur ávöxtur með smá beiskju í lokin. Vín sem hentar t.d. með ítölskum pastaréttum þar sem tómatar koma við sögu s.s. bolognese og lasagna.

1.899 krónur.

Deila.