Þetta er einfalt en afskaplega gott risotto sem er tilvalið með Drostdy Hof Chardonnay. Það má líka blanda grænmeti út í undir lokin, s.s. grænum baunum eða ferskum kryddjurtum, s.s. steinselju eða óreganó.
- 1,5 lítrar kjúklingasoð (eða kjúklingarkraftur í heitu vatni)
- 1,5 dl ólífuolía
- 2 saxaðir laukar
- 6 saxaðir hvítlauksgeirar
- 1,5 dl Drostdy-Hof Chardonnay
- 400 g Arborio-hrísgrjón
- 125 g rifinn parmesanostur
- salt og pipar
Hitið kjúklingasoðið í potti.
Hitið ólífuolíu á pönnu og mýkið lauk og hvítlauk. Bætið grjónunum út á veltið um í 2-3 mínútur. Hellið þá hvítvíninu út á og sjóðið niður, hrærið vel í á meðan.
Byrjið nú að bæta kjúklingasoðinu út á þannig að það þekji grjónin alveg í fyrstu og síðan ausu og ausu þar til að grjónin eru tilbúin, það tekur um 18-20 mínútur.
Bætið loks rifna ostinum saman við, bragðið til með salti og pipar, látið standa í 1-2 minútur og berið strax fram.