Vina Maipo Gran Devocion Syrah – Petite Sirah 2009

Petite Sirah er ekki Syrah þótt nafnið bendi til þess. Þessi þrúga er líka þekkt undir nafninu Durif og talið að hún hafi orðið til sem blendingur af Syrah og Alpaþrúgunni Peloursins í Frakklandi á nítjándu öld. Hún er algengust í Bandaríkjunum þar sem hún fékk heitið Petite Sirah. Í þessu rauðvíni frá Vina Maipo í Chile er hún notuð á móti Syrah.

Vínið er dökkt og í nefi er í fyrstu áberandi eik, töluverður kókos, kaffi og vanilla. Undir er dökkur og þéttur ávöxtur, sem kemur betur fram og rennur saman við eikina eftir því sem vínið fær að standa opið lengur. Þroskuð plóma, sólber og rifs. Þétt, mjúk tannín í munni. Töluvert vín. Þolir þungan mat, stórar steikur, krydd og sósur.

2.599 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.