Viticultura Ecologico er eins og nafnið gefur til kynna vín sem er ræktað með lífrænum hætti af spænska vínhúsinu Beronia. Þetta er hreint Tempranillo-vín og héraðið er auðvitað Rioja.
Eins og góð lífræn vín verða að geta gert þá stendur þetta vín alveg fyrir sínu – á eigin verðleikum sem vín, stíllinn meira út í ungan, töluvert kryddaðan ávöxt fremur en einnig nokkur eik líkt og svo algengt er í Rioja. Þroskuð rauð ber í nefi, kirsuber, nokkuð kryddað, þarna er vanilla en líka grænar kryddjurtir, nokkuð tannískt í munni, súkkulaði og tóbak.
2.298 krónur. Góð kaup.