Fleurie er eitt af þorpunum í norðurhluta Beaujolais-héraðsins sem að stendur undir því að mynda sitt eigið undirsvæði. Fleurie eru
Þetta er bjart, létt og þægilegt rauðvín, mild, sæt ávaxtaangan, rauð ber, jarðarber, kirsuber en líka þroskaður banani og appelsínubörkur. Góður þéttleiki í munni, þetta eru ekki vín sem að vinna á kraftinum heldur fínleikanum og seiglunni, mild sýra og tannín, þægilegur ávöxturinn með votti af kryddi heldur áfram út í lokin.
2.498 krónur. Mjög góð kaup.