Þeir mega eiga það Spánverjar að oft taka þeir ómakið af þeim sem vilja smá þroska í vínin að geyma þau fyrir þau. Þó að þetta Reserva-vín frá Ramon Roqueta sé ekki dýrt hefur það fengið fimm ára geymslu og er komið með góðan, byrjandi þroska sem má sjá í litnum. Mild angan af sultuðum rifsberjum og skógarberjum, vanilla og kaffi. Langt, fylgið sér og nokkuð tannískt, löng, sýrumikil ending. Fínasta matarvín.
1.849 krónur. Frábær kaup á þessu verð og fær fjórðu stjörnuna fyrir hlutfall verðs og gæða.