Fyrsta innsýn þeirra sem komnir eru á miðjan aldur og þaðan af eldri í heim ítalskrar matargerðar tengist oftar en ekki köflóttum dúkum og rauðvínsflöskum frá Chianti með bastbotni, s.k. fiasco, sem lengi vel nutu mikilla vinsælda. Hverjir muna t.d. ekki eftir „rómantíska atriðinu“ í Disney-teiknimyndinni Lady and the Tramp?
Það er orðið nokkuð langt síðan fiasco-flöskurnar heyrðu sögunni til, það langt að nú eru vínhús farin að endurvekja þær. Hér er það eitt þekktasta vínhús Toskana, Ruffino, sem setti Chianti Superiore-vínið,i sitt á markað í eins lítra fiasco-flösku – sem óneitanlega hefur sinn sjarma.
Þetta er klassískur Chianti, djúp, þroskuð kirsuberjaangan, möndlukaramella og krydd í nefi. Þurrt í munni, sýra, apótekaralakkrís. Reynið með pastaréttum með tómatasósum.
3.299 krónur fyrir 1 lítra flösku eða sem samsvarar 2.475 krónum fyrir hefðbundna flösku. Ágætis kaup.