Apothic Red 2011

Apothic Red er kalifornískt rauðvín. Þrúgurnar koma af mismunandi svæðum, flestar úr Lodi og vínið er kokteill úr nokkrum þrúgum þar sem Zinfandel er fyrirferðarmest í bland við Merlot, Syrah og Cabernet Sauvignon.

Það er kannski helst hægt að lýsa þessu víni sem svolítið „ýktu“, dökku með ýktum sætum berjaávexti í nefi, kirsuber, brómber, hindber, bláber í bland við sæta vanillueik og súkkulaði. Það er ekki þungt, þykkur og sætur berjasafi í munni sem endist lengi. Vín sem þolir vel kryddaðan mat og bragðmikinn.

2.199 krónur.

Deila.