Búrgund er upprunasvæði Chardonnay-þrúgunnar og þar unir hún sér yfirleitt hvað best. Þetta AOC Bourgogne hvítvín frá Joseph Drouhin er nútímalegt og vel gert en þrúgurnar koma af mismunandi svæðum héraðsins, aðallega Chablis og Maconnais.
Mildur sítrusávöxtur í bland við gul epli, perur, svolítið mineralískt með vott af hnetum og vanillu. Ferskt, vel uppbyggt með góðan strúktúr. Þetta er fínt Búrgundarvín, gott matarvín. Reynið t.d. með humarsúpu.
2.198 krónur. Mjög góð kaup.