Altano Douro DOC 2012

Symington-fjölskyldan hefur verið áberandi í Douro-dalnum í Portúgal og verið með fremstu framleiðendum portvína. Meðal portvína fjölskyldunnar má nefna Graham’s, Warres og Dows. Fyrir um fimmtán árum hóf hún jafnframt framleiðslu á hefðbundnum vínum undir nafninu Altano.

Hvítvínið er gert úr þremur þrúgum, Malvasia Fina, Viosinho, Rabigato og Moscatel Galego, sem ræktaðar eru hátt í hlíðum Douro. Angan vínsins er mjög þurr, í fyrstu ger, grænar kryddjurtir, blóm, færist út í kerfil og þurrkaðan sítrus. Mjög þurrt í munni, mikil sýra og ferskleiki.

1.998 krónur. Frábær kaup á þessu verði.

Deila.