Bodegas Muga er eitthvert besta dæmið um vínhús sem framleiðir hefðbundin, stórkostleg Rioja-vín. Muga-fjölskyldan hefur framleitt vín í Haro í Rioja Alta frá árinu 1932 og þessi vín eru í hugum margra allt það sem Rioja á að snúast um. Stór, mikil og eikuð vín sem eru fullkomin með góðri nautasteik.
Tinto Reserva 2009 er Muga eins og það gerist best. Dökkt á lit, örlítill þroski kominn, sviðið með reyk og jörð, vanilla, leður og blek, djúpur og dökkur ávöxtur, kryddað, Bordeaux-legt í uppbyggingu, stíf, kröftug tannín, þykkt um sig með góðri sýru sem gerir að stórkóstlegu matarvíni. Umhellið gjarnan.
3.999 krónur. Frábær kaup.