Finca Resalso 2012 var það vín sem að við völdum bestu rauðvínskaupin á síðasta ári. Nú er kominn nýr árgangur af þessu víni frá framleiðandanum Emilio Moro í Ribera del Duero á Spáni og það stendur enn fyllilega fyrir sínu.
Dökkt, mikill þykkur berjasafi, bláber, krækiber, smá sprittað, kryddað. Öflugt og mjúkt í munni. Vín fyrir rautt kjöt, gjarnan grillað. Naut og lamb.
2.599 krónur. Mjög góð kaup og fær hálfa viðbótarstjörnu fyrir hlutfall verðs og gæða.