Rivetto Barbera d’Alba Nemes 2012

Encrico Rivetto hélt eftirminnilega smökkun hér á landi á Piedmont-vínum fjölskyldunnar fyrr á þessu ári. Barbera-vínið Nemes vakti þar nokkra athygli og nú hefur hinn frábæri 2012 árgangur leyst 2009 af hólmi. Viðtal sem við tókum við Enrico má lesa með því að smella hér.

Nemes er klassískt og  nokkuð mikið Barbera-vín, Dökkur, þroskaður og sætur ávöxtur, töluvert kryddað, mulinn kóríander, lavender, svört þroskuð ber, eik. Vel uppbyggt, öflugt tannín, fersk og lífleg sýra, djúpur og kryddaður ávöxtur. Frábært matarvín.

3.490 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.