Willm Riesling 2012

Riesling er að margra mati stórkostlegasta hvítvínsþrúga sem til er en nýtur hins vegar oft ekki sannmælis, kannski ekki síst vegna þess að margir tengja hana við sæt og óspennandi vín á borð við liebfraumilch. Þetta er hins vegar afskaplega fínt dæmi um það hvers þrúgan er megnug. Þurrt og ferskt vín en jafnframt arómatískt með safaríkum ávexti.

Alsace í norðausturhluta Frakklands er undursamlegt víngerðarhérað og stílarnir eru margir,  Þetta er vín sem stílar inn á ferskleikann, skarpt í nefi í fyrstu, límóna, límónubörkur, gul epli, hvít blóm, það tekur strax á móti með ferskri og skapri sýru en síðan tekur þykkur ávöxturinn við. Dúndur matarvín.

2.499 krónur. Frábær kaup.

Deila.