Tenuta Il Poggione er vínhús í Sant Angelo in Colle á svæðinu Montalcino í Toskana á Ítalíu. Þetta er fjölskylduhús og nú rekið af fimmtu kynslóð Franceschi-fjölskyldunnar sem stofnaði það á síðari hluta nítjándu aldar. Il Poggione er eitt þriggja vínhúsa sem upphaflega hófu framleiðslu á Brunello-vínum í Montalcino.
Toscana Rosso er blanda úr Sangiovese (70%) og Merlot. Vínið er dökkt, all eikað með töluverðu kaffi og súkkulaði í nefi, vanillu og kryddi. Þykkt með nokkuð djúpum og flottum plómuávexti. Mjúk tannín og fín fylling. Vín sem heillar, frábært með mat.
2.495. Frábær kaup á því verði. Vínið fær hálfa viðbótarstjörnu fyrir einstakt hlutfall verðs og gæða.