Montes Merlot Reserva 2012

Merlot þrúgan er ein af Bordeaux-þrúgunum sem hefur ásamt Cabernet Sauvignon náð hylli um allan heim.Þetta er vín úr smiðju Aurelio Montes, eins besta víngerðarmanns Chile.

Vínið er nokkuð dökkt á lit, fjólublátt. Angan af sætum, mjög dökkum berjum, rifsberjum, kirsuberjum, sólberjum í bland við súkkulaði og örlitið mokkakaffi, eikin greinilega amerísk, getur sætari og kryddaðari tóna en sú franska. Þykkt og safaríkt í munni, með þykkum og mjúkum ávexti, krydduðum. Vín fyrir grillkjöt.

1.999 krónur. Frábær kaup.

Deila.