Cono Sur höfum við fjallað um áður, vínhús sem er ekki hvað síst þekkt fyrir vistvæna vínrækt. Þetta Cabernet Sauvignon úr Reserva Especial-línunni er framúrskarandi gott, það hefur sín dæmigerðu einkenni frá Chile en er samt langt í frá að vera dæmigert Chile-vín. Það sækir ekki síður stílinn til Kaliforníu og Bordeaux og er eins konar sambræðingur stíla þessara þriggja svæða.
Mjög dökkur og djúpur, svarblár litur. Þykk áferð. Þurr angan af bláberjum, krækiberjum og sólberjum, mjög míneralískt, örlítið kaffi, vanillusykur og fennel. Sýrumikið, kröftugt, þétt tannín, djúpur ávöxtur, langt og mikið. Má alveg umhella.
2.395 krónur. Frábær kaup á þessu verði.