Hinn geysivinsæli matarmarkaður Búrsins verður haldinm í fimmta sinn helgina 30. til 31. ágúst í Hörpu og verður opið milli 11 og 17 báða dagana.
Á markaðnum koma saman um fimmtíu bændur og framleiðendur alls staðar af landinu með fjölbreytt úrval af allskyns góðgæti og gefst kjörið tækifæri til að ræða við þá um hluti eins og uppruna, innhald og meðferð matar, sem eins og allir vita skiptir okkur öll máli.
Á markaðnum verður líka hægt að fá svör við áleitnum spurningum eins og :
Hvað er ostrusveppur? Er te ekki bara te? Hvað er fornaldarbrauð? Hefur rigning áhrif á hunang? Er til íslenskt nautakjöt? Er hægt að búa til konfekt úr kartöflum? Smakkast kjúklingur betur ef hann hefur pláss til að hreyfa sig? Er hægt að gera pylsur úr grænmeti? En er hægt að gera pylsur án allra aukaefna? Má salta karamellur? Er þari ætur?
Í frétt frá Búrinu segir að á markaðnum sé „einnig upplagt tækifæri til að fylla á kistuna fyrir haustið, finna bragð sem þú hefur aldrei fundið áður, gantast við bændur og ekki síst að upplifa mat og menningu á einn besta hátt sem völ er á.
Áhugafólk um mat sem og þeir sem borða mat ættu að passa að láta þennan markað ekki fram hjá sér fara.“