Monte Velho Tinto 2013

Herdado de Esparao í Alentejo er með stærstu vínhúsum Portúgal og hefur skotist upp á stjörnuhimininn eftir að ásralski víngerðarmaðurinn David Baverstock, sem einnig gerir m.a. vínin fyrir Quinta do Crasto og Quinta de la Rosa tók við víngerðinni árið 1992.
Esparao er nú með virtari vínhúsum Portúgal og nokkur af vínunum þaðan eru nú fáanleg hér á landi, þau ódýrari til að byrja með. Monte Velho er rauðvín úr þrúgunum Aragonez, Trincadeira, Touriga Nacional og Syrah.

Angan er heit og svolitið krydduð. Bláber, krækiber, sólber áberandi, einnig vanilla, lakkrís. Þurrt, ágætlega tannískt, kryddað og heitt með mjög mjúkum ávexti. Virkilega flott vín.

2.398 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.