Það var lengi vel erfitt að fá flottan Pinot Noir sem var ræktaður utan Búrgunds (og já hugsanlega Nýja Sjálands). Með árunum hefur hins vegar framleiðendum víða um heim tekist að ná flottum tökum á þessari dyntóttu en jafnframt mögnuðu þrúgu, þó svo að stílinn sé oft mjög ólíkur þeim upprunalega frá Búrgund.
Þetta er einmitt dæmi um slíkt, virkilega flott vín, en jafnframt enginn hætta á að menn rugli því saman við Búrgundarvín. Samt er þetta greinilega og óaðfinnanlega Pinot Noir. Ávöxturinn ríkjandi, þykkur, mjúkur og berjamikill, kirsuber, rifsber, skógarber lyng og töluvert af súkkulaði, svolítið míneralískt. Þykkt og mjúkt, ágæt dýpt, aðgengilegt.
2.495 krónur. Frábær kaup.