Jacob’s Creek hefur um árabil verið eitt þekktasta vörumerki ástralska víniðnaðarins en þetta er einnig heitið á læk sem rennur í gegnum hluta Barossa-dalsins en þar hófu þýskir innflytjendur vínrækt á fyrri hluta nítjándu aldar.
Classic Chardonnay 2013 er ferskt, suðrænt hvítvín. Töluverður sítrus, ferskjur, þroskaðar melónur, eik gefur sætu, smjör og vanillu. Fersk sýra, mjúkt, sætur ávöxtur í munni. Virkilega þægilegt vín.
1.999 krónur. Mjög góð kaup.